Hæhæ.... ég var nú eiginlega búin ad ákveda ad thad væri komin nóg um blogg en sökum forvitni ákvedinna fjölskyldumedlima neydist madur víst til ad halda bloggsídunni gangandi. En ég ætla adeins ad spóla til baka og koma ad thví sem frá var horfid.
NIH endadi med poppi og prakt, sídasta vikan var svolítid byggd upp eins og fyrsta vikan í skólanum, rosa skemmtileg og óhefdbundin vika. Svo var lokakvöldid laugardaginn 18. des. Thad byrjadi á rædu hjá skólastjóranum og svo fengu allir sem voru ad hætta skjöl og fínerí. Svo var rosa fínn matur og í framhaldi svona kokteil partyý og allir med deit. Svo voru endalausar rædur, bædi hjá nemendum og kennurum, skemmtiathridi, söngathridi, leikir, grín o.fl. Ad lokum voru kennararnir med svona sjóv thar sem their voru búnir ad setja sig í hlutverk okkar nemendanna og by the way stela fötunum okkar og gerdu svona grín leikthætti um okkur og lífid í skólanum. Their voru líka búin ad gera videó og semja söngtexta um okkur, ekkert smá fyndid allt saman og vid grenjudum gjörsamlega öll úr hlátri. Skemmtiathridin stódu yfir alveg fram yfir midnætti og ég held ad thetta kvöld hafi verid skemmtilegasta kvöld lífs míns en audvitad rosa erfitt ad hafa hugsad um ad thetta hafi verid sídasta kvöldid med öllum krökkunum thar sem madur á kannski aldrei aftur eftir ad hitta marga aftur. Á laugardeginum ádur en ad allir fóru heim var svo svona kvedjustund thar sem allir skrifudu líka kvedjur í söngbækurnar hjá félugum sínum. Fyrst kvöddum vid kennarana og svo hvort annad, thvílíkt erfitt ad kvedja allt og alla og sumir fóru nú eiginlega bara alveg yfir um. En pabbi einnar stelpu skutladi okkur svo nidur á lestarstöd og ég tók lestina til Kaupmannahafnar med vinkonu minni. Mamma, pabbi og Ívar komu svo til Køben bara deginum eftir thar sem thau voru búin ad ákveda ad eida jólunum í Danmörku. Vid vorum med íbúdina hjá Rönnu frænku í láni sem er á kollegíi eda svona stúdentagördum thannig svo thad var nokkud thröngt á thingi. En reyndar var stadsetningin alveg frábær thar sem thad var hægt ad labba bara nidur í bæ.
Thad var mjög næs ad fá fjölskylduna út thó svo ad thad hefdi náttúrulega verid best ad vera heima um jólin. Mamma og pabbi fóru keyrandi til Søndeborgar sem er hjá thýsku landamærunum á bílnum hennar Hildar ad heimsækja frænku hennar mömmu og thau lentu í thví ad bíllinn biladi svo ferdin hjá theim lengdist tví um einn dag. Vid vorum öll soldid sein med jólagjafirnar thetta árid, thar sem vid ætludum öll ad kaupa thær bara í Køben svo thad var pínu stress hjá okkur í borginni ad fynna jólagjafir handa öllum. Ég held ad vid mædgur höfum allar verid komnar med upp í kok af verslunarmidstödum og göngugötum, búnar ad ráfa um endalaust á milli molla og leita af jólagjöfum.
En vid héldum jólin heima hjá tengdaforeldrum Hildar, svona ekta dönsk jól, thar sem vid bordudum pörusteik og önd og dönsudum í kringum jólatréid. Thessi jól voru samt voda spes e-d, miklu óhátídlegri en madur á ad venjast en audvitad er alltaf gaman ad prófa eitthvad nýtt. Vid vorum svo á Jóladag hjá bródur hanns pabba og fjölskyldu í Glostrup sem er bær fyrir utan Kaupmannahöfn sem ég myndi segja ad væri úthverfi af borginni. Thad var svona ekta íslenskt jólabod med hangikjöti og uppstúf og fullt af íslendingum, svolítid jólalegra ad mínu mati. Milli jóla og nýjárs fórum vid svo og skodudum Calsberg safnid sem er eiginlega bara vid hlidina á ýbúdinni sem vid vorum med. Ég versladi líka slatta og svo fóru mamma og pabbi heim 29. des svo ég var hjá Lillu frænku og Gilla yfir áramótin. Vid eldudum rosa fínan mat og bjuggum til flottan desert, fórum svo til bródur hanns pabba og fjölsk. eftir matinn thar sem var fullt hús íslendinga eina ferdina en og horft var á áramótaskaupid í beinni af netinu og audvitad fagnad áramótunum. Ég fékk ad vera hjá Lillu og Gilla í nokkra daga eftir áramót og svo kom Sandra út thann 6. jan. og var hjá vinafólki sínu í Køben. Vid kíktum svo adeins á útsölur og thad var ad sjálfsögdu verslad slatta og svo fórum vid í mat til Hildar. Sunnudaginn 9. jan. tókum vid svo lestina til Odder en thad er bærinn sem nýji skólinn minn er í. Ég get svo svarid thad ad ég skil ekki allt thetta dót sem ég næ ad sanka ad mér, fór med heila ferdatösku til íslands í haust og sendi mömmu aftur heim med slatta af fötum um jólin en samt var ég med allt of mikid af dóti, ætladi ekki ad koma thessu nidur í töskur en sem betur fer hófst thad á endanum.
En já.....thar sem ég er ad fýla lýdháskólalífid í tætlur og Sandra vinkona var búin ad skrá sig í lýdháskóla med vinkonu sinni en vinkonan hætti vid, ákvád ég bara ad skella mér med og sé sko alls ekki eftir thví. Vid lögdum af stad frá Kaupmannahöfn sunnudaginn 9. jan med FULLT af dóti. Skil ekki hvernig ég komst á leidarenda med 30 kílóa tösku, svefnpoka, sæng, bakpoka o.fl. Ég og Lilla byrjudum á thví ad sofa yfir okkur thar sem hún skutladi mér upp á lestarstöd, en mættum thó sem betur fer á tilsettum tíma........ en nei nei thá hafdi Sandra misst af innanbæjarlestinni sinni og var soldid sein upp á Hovedbanen. Svo ætladi ég aldrei ad fynna Söndru og loksins thegar ég fann hana voru fimm mínútur thangad til ad lestin færi svo vid theyttustum um í leit ad réttum vagni med allt dótid medferdis. Endudum svo audvitad í vitlausum vagni svo thad leid klukkutími thangad til vid komumstum í sætin okkar. Næst thurftum vid svo ad skipta um lest í Århus og thar sem vid vorum med allt dótid tók allt einhvernvegin helmingi lengri tíma svo vid komumstum ekki á rétt spor í tæka tíd og misstum af lestinni thadan til Odder og thurftum ad bída eftir næstu lest í klukkutíma. En vid komumstum nú á leidarenda og hérna í skólanum var tekid vel á móti okkur.
Skólinn sem ég er í er svona lýdháskóli sem er eiginlega svona blandadur skóli med 6 brautum sem hægt er ad velja um. t.e.a.s. musik, söngur og dans, íthróttir og outdoor, kvikmynda og sjónvarpsgerd, listir og hönnun, sálfrædi og sköpun, líkami og medvitund svona ef ég beinthýdi thetta. Ég valdi mér músikbrautina en er líka í fögum af íthróttabrautinni svo ég ad ég er skrád í:
Sang og stemme sem eru svona tímar til ad læra ad syngja rétt eda beita röddinni rétt, rithmisk sammenspil, thar sem búid er ad setja saman hljómsveit, svo thetta eru í rauninni bara svona hljómsveitaræfingar. Svo er ég í íthróttum sem eru bara svona blandadar íthróttir, kór, gítar fyrir byrjendur, sundi, rithmisk sammenspil fyrir byrjendur sem eru svona tímar thar sem madur fær tækifæri til ad læra ad spila á hljódfæri sem madur hefur aldrei spilad á, ég er t.d. núna eftir 2 tíma búin ad læra nokkur gítargrip, hvernig á ad spila á bassa, trommur og nokkra hljóma á píanó, svo thetta eru alveg magnadir tímar. En ef ég held áfram thá er ég líka skrád í fag sem heitir idrætstæning eda íthróttathjálfun sem er í rauninni bara svo alhlida líkamsthjálfun og mikid um hlaup og tholthjálfun. Og svo eru audvitad fyrirlestrar alltaf einu sinni til tvisvar í viku e-d um lífid og tilveruna. Ég er mjög ánægd med thad sem ég valdi mér en thad er audvitad rossaleg vinna ad vera í öllum thessum tónlistartímum, soldid mikil heimavinna en thad er bara gaman. Í skólanum eru e-d um 70. nemendur og koma svo einhverjir fleiri um midjan febrúar. 1/3 af nemendunum eru útlendingar og adallega frá austur Evrópu. Annars er bara ég og Sandra og einn stórfurdulegur normadur sem kom í gær og ein japönsk stelpa. Svo thad er mikid lagt upp úr thví ad tala ensku í tímum. Fólkid hér er á aldrinum 18 ára til fertugt mindi ég halda eda allaveganan hátt í thad, svo thad er mikill munur á thessum skóla og NIH thar sem medalaldurinn thar var ca. 21 ár.
En thad er búid ad vera mjög fínnt hérna hjá okkur í Odder sídan vid komum. Vid Sandra fengum ad vera saman í herbergi en ég get nú ekki sagt ad herbergid hafi verid upp á marga fiksa thegar vid mættum. Frekar hrátt bara med ómálada múrsteinsveggi og án djóks ekki neinar einustu hirslur. Vid byrjudum nú á thví ad breyta adeins med thví ad færa til mublur. Svo voru engar hillur á badinu bara 10 snagar eda e-d álíka, hvad á madur ad gera vid 10 snaga inni á badherbergi? svo voru engir snagar á ganginum fyrir úlpur og jakka og ekkert pláss fyrir skóna á ganginum. Svo er risa fataskápur sem er med pláss fyrir svona tíu hillur en nei nei hefur bara thrjár, engin sokka eda nærfataskúffa eda thesskonar hirsla og svona gæti ég lengi talid. Vid gerdumst thví voda snidugar og gerdum okkur ferd í IKEA. Vid tókum sem sagt lest til Århus og strætó thadan í e-d úthverfi thar sem ikea er í. Til ad byrja med áttum vid nú í soddan erfidleikum med ad finna út hvar rétta strætóskílid var og fór rosalegur tími í ad finna thad. Vidd löbbudum upp á einhverja rútustoppustöd sem vid héldum ad væri strætóstoppustöd og fundum ad sjálfsögdu ekki rétta strætóskílid. Svo eftir mikla leit var okkur vísad á strætóskíli sem stód audvitad bara úti á götu. Thá föttudum vid ad thessi stoppustöd væri rútubílastöd en ekki strætóstoppustöd. En eftir ad vagninn fór tókum vid eftir thví ad hann pikkadi upp fólk á lestarstödinni svo vid hefdum alveg eins getad sleppt thessari leit og tekid vagninn beynt fyrir utan lestarstödina haha en nóg um thad. Thegar vid vorum búnar ad vera svona korter í strætónum föttudum vid ad vid vorum í vitlausum vagni svo vid thurftum ad hoppa út og taka annan vagn til baka og skipta en og aftur um strætó til ad komast á leidarenda sem hafdist. Eftir mikla verslunarferd og med tvo stóra ikeapoka í hvorri hendi ætludum vid ad fara ad taka strætó til baka en nei nei sídasti strætóinn sem gekk kom aldrei svo tharna stódu svona 20 manns í strætóskílinu ad bída eftir vagninum sem aldrei kom. Eftir margar símhringingar í strætó endadi thad thannig ad vid tókum leigubíl ásamt einhverju fólki ad hverfi sem innihéllt gangandi strætóa júhúú
Svo thadan komumst vid med strætó ad lestarstödinni. Ég verd nú ad segja thad ad eftir ikea ferdina miklu lítur herbergid okkar mun betur út og vid erum búnar ad koma okkur rosa vel fyrir.
Odder virdist vera hinn fínasti bær, algjör hátíd allaveganna midad vid Brønderslev, mjög fallegur og hefur upp á margt ad bjóda. Hér eru gjörsamlega allar helstu matvörubúdirnar, flottur midbær med flottri göngugötu og flottum búdum, thetta er alveg svona ekta danskur bær. Bærinn liggur vid austurströnd jótlands 40-50 km. frá Århus. Vid erum búnar ad spóka okkur soldid um hér í bænum svo madur er farinn ad rata allvel hérna sínist mér. Madur er í sirca 10 mínútur ad labba í midbæinn frá skólanum og hér er allt til alls. Vid höfum gott mötuneiti, flotta setustofu, íthróttahús, lítinn líkamsræktar-sal, stóran samkvæmissal og svo eru sófar og lítid eldhús med ísskáp vid hvern og einn herbergjagang en thví midur er búid ad fjarlægja öll áhöldin úr eldhúsinu eftir ad einhverjir kínverjar voru hér ad elda sér snáka og froska og lyktin var víst óbærileg.
Krakkarnir hérna eru rosa fínir og erum vid Sandra ad plumma okkur rosa vel hérna og strax komanar med ágætis vinkonur. Mér fynnst samt vera rosaleg skipting á milli international og dananna en thar sem ég og Sandra tölum bædi tungumálin og erum med dönum í tímum erum vid eiginlega bara svona í bádum hópunum sem mér fynnst bara fínnt. Thad er gaman ad segja frá thví ad á föstudaginn sídasta vorum vid ásamt öllum dönunum sem voru hér um helgina í kósýheitum öll ad horfa á mynd í náttfötunum svo thegar myndin var búin kíktum vid inn í setustofuna og thar voru allir international krakkarnir á medan med brjálad partý, ótrúlega fyndid. Vid vorum svona frekar hissa öll haha.
Um sídustu helgi var svo svona velkomstfest í skólanum thar sem var fordrykkur, rosa fínn matur, smá ræduhöld og svo svaka partý. Kennararnir hérna virdast skemmta sér vel med nemendunum thar sem their voru vel í glasi, trylltir á dansgólfinu og staupa sig inni á kennarastofu. í dag fórum vid svo nokkrir nemendur saman í smá sightsing. Fengum skólabílinn lánadann og fórum í göngutúr í rosa fallegann skóg og keyrdum svo nidur ad strönd sem er hér rétt hjá, ég tók slatta af myndum.
Í Apríl verdur svo farid í ferd til Póllands eda svona í menningarferd til Kraká og förum svo og skodum Auschwitz nasista-útrýmingabúdirnar og líka hinar búdirnar sem ég man ekki hvad heita, thad verdur örugglega mjög sérstakt ad koma thangad. Í júní er svo ferd til Kína sem ég og Sandra erum eiginlega alveg ákvednar ad fara í. Thad er búid ad kynna ferdina og farid verdur til Beijing og svo tekin lest til Shang Hai. Thad er allaveganna mjög skemmtilegur kennari sem fer med okkur sem á kínverska tengdafjölskyldu og vid erum eiginlega alveg á thví ad thetta sé svona ones in a live time ferd og thó thetta kosti alveg slatta sé thetta algjörlega thess virdi og plús thad ad thad kostar ekkert ad lifa í Kína, vid erum bara ad vona ad thad fari skemmtilegir krakkar med.
Mér sýnist thetta vera komid nóg af bloggi í bili.......Bæbæ..... Ólöf
Ps. er med fullt af myndum frá lokahófinu í NIH, jólunum og áramótunum í annari tölvu hjá Lillu frænku í Køben svo ég næ ekki ad setja thær inn fyrr en ég geri mér ferd í borgina en fer brádum ad henda inn myndum hédan úr Odder.